Um Nora

AÐGERÐAÁÆTLUN NORA 2026

Norrænt Atlantssamststarf (NORA) stuðlar að grænni, samkeppnishæfri og félagslega sjálfbærri þróun á Norður-Atlantshafssvæðinu með því að styðja og hvetja til samstarfs milli hagaðila í Norður-Atlantshafshluta Norðurlanda. NORA styður aðgerðaráætlun norrænu ráðherranefndarinnar fyrir Framtíðarsýn 2030 með aðgerðaáætlun sinni. Í stefnu NORA fyrir árin 2025-2028 er staðfest það hlutverk NORA að styrkja og stuðla að framgangi verkefna, vera stefnumótandi og efla tengsl á NORA svæðinu. Áherslur og forgangsröðun málefna fyrir samstarfið eru skilgreind í stefnunni.

1. Umsóknir í tveimur umferðum

Verkefnastyrkir eru mikilvægt verkfæri fyrir NORA við að ná markmiðum stefnunnar og aðgerðaráætlunar svæðisins fyrir Framtíðarsýn 2030. Með stuðningi verkefna verður til samskiptavettvangur sem er mikilvægur hluti af tengslaneti NORA við hagaðila. Umsóknarfrestir verða í byrjun mars 2026 og byrjun október 2026. NORA mun halda vefnámskeið með góðum fyrirvara, fyrir væntanlega umsækjendur, bæði á skandinavísku og ensku.

2. Leiðtogaverkefni Grænlands

Grænland fer með formennsku NORA árið 2026. Áhersla verður á að auka færni, efla og styrkja tengsl og bæta heildarskipulag NORA sem hluta af aðgerðaráætlun ársins.

3. Samstarf við Barentsráðið

Áfram verður unnið að þeim stefnumótandi aðgerðum að styrkja samstarf NORA við aðra hagaðila á svæðinu. Nú við Barentsráðið sem sinnir verkefnum og áherslusviðum sem hafa skörun við viðfangsefni og áherslur NORA. Lagt verður upp með að ná samstarfi um þau málefni þar sem talið er mögulegt að skapa samlegð.

4. Generation Nordic

Þátttaka ungmenna og innleiðing verkefna með þátttöku ungmenna er þverlægt viðfangsefni í allri starfsemi NORA. Á árinu 2026 verður unnið áfram að því að halda Generation North Atlantic II, sem nú nefnist Generation Nordic, í samstarfi við samstarfsaðila á svæðinu.

5. Silver Economy verðlaunin 2026

Eitt af áherslusviðum NORA fyrir árin 2025-2028 er silfurhagkerfið eða „auðlind eldri borgara“. Ein leið til að beina athygli að viðfangsefninu er að draga fram góð dæmi. Á árinu 2026 verður þeirri hugmynd komið í framkvæmd með verkefni þar sem kallað verður eftir tilnefningum að góðu verkefni eða frumkvæði sem setur auðlind eldri borgara í samhengi sem verkfæri í byggða- og svæðisþróun. Verkefninu lýkur með verðlunaafhendingu á viðeigandi viðburði (t.d. Arctic Frontiers eða Arctic Circle). Sigurvegarinn hlýtur peningaverðlaun.

6. Samstarfið við nágranna i vestri

Samstarf við nágranna í vestri er þverlægt í allri starfsemi NORA, þ.e. ávallt er kannað hvort þátttaka NiV sé viðeigandi og möguleg. Gert er ráð fyrir að ráðist verði í kynningar til að miðla upplýsingum, áhersla verði á Hjaltlandseyjar sem hafa sýnt því áhuga að eiga samstarf við NORA.